Árgangur 1982 Dalvíkurbyggð!!
11.01.2007 12:53:24 / gaman

Gleðilegt ár

Komið þið sæl!

Nú er stóra spurningin hvort við eigum að endurvekja þessa síðu og skipa nefnd sem sér til þess að við hittumst?

Það hlýtur að vera einhver í þessum stóra hópi sem vill og getur planað smá hitting. Hvað finnst ykkur og hverja vilji þið og treistið til að sjá um þetta? Gott væri líka ef þið kæmuð með einhverjar hugmyndir um hvað þið viljið gera.:lol:

Svo viljum við óska Andreu til hamingju með dóttur sína hana Emmu Sófíu. Einnig viljum við óska Úlfari til hamingju með soninn Kasper. Síðunum þeirra verður bætt við tenglasafnið okkar:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 11:37:54 / gaman

Borgar sig eitthvað að spurja ???

Er einhver stemmnig fyrir því að plana bekkjarhitting og djamm  um jólin..
Þá meina ég ekki aðfangadag jóla ( ég er upptekin þá)
heldur frekar kannski á annan í jólum ?

Viðbrögð takkk!


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 22:41:54 / gaman

Já... aftur

Það eru komin fín viðbrögð við hitting....

En er einhver farin að athuga með
staðsetningu fyrir okkur???


Það er alltof seint að fara að plana eitthvað stórt...
Eigum við ekki bara að reyna að fá einhvern sal leigðan eða lánaðan þar sem við getum setið og spjallað og þeir sem vilja drukkið&djammað ;)
Það er auðvitað bara snilld að rifja upp gamla tíma!
Allir að mæta kannski með gamlar myndir ef þeir
eiga og annað sniðugt !!

Koma svo!!!

Látum í okkur heyra!!! :)

kveðja
Ólöf sem er alveg að fíla þetta sumar!


» 24 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 11:33:07 / gaman

Já...

Hvað segiði nú krakkar mínir ;)
Ég bara varð að fara að skipta mér að þessu hérna  ( getur það verið )

En eigum við ekki að reyna að hittast í sumar... Mér lýst best á föstudagskvöldið þegar fiskidagurinn er?? Held að þá verði flestir í bænum og góð ástæða fyrir hina sem ekki höfðu ákveðið að vera hér..
Að breyta bara planinu hjá sér og skella sér til Dalvíkur...

Er ekki bara best að 3-4 taki að sér skipulagninu og annað slíkt.?
Það eru þegar nokkrir búnir að bjóða sig fram svo það er um að gera hafa bara samband sín á milli og drífa í þessu.. er það ekki ;)

Eins væri frábært ef eh eiga myndir í tövunni  frá því að við vorum saman í skólanum....þá má senda mér það endilega á lofheida@hotmail.com">olofheida@hotmail.com og ég skal skella þeim hérna inn. 
Eins ef fólk vill senda inn pistla um hvað það hefur verið að brasa síðustu árin eða  um eitthvað annað skal ég setja það hérna inn líka ;-)

Rífum upp þessa umræðu...


Frábært væri líka ef fólk sem skoðaði síðuna myndi kvitta fyrir sig svo við höfum eh hugmynd um hversu margir vita af þessu..

Jæja bið að heilsa í bili..

Kveðja Ólöf Heiða




» 10 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 11:09:49 / gaman

Hæ hæ

Gaman að sjá smá líf á þessari síðu. Verum samt áfram dugleg að auglýsa síðuna svo hægt sé að sjá hvort nægur áhugi er fyrir hendi. Þetta lofar allavegana góðu. Ég ákvað að búa til e-mail handa okkur líka sem er argangur1982@best.is og þið getið sent þangað einhverjar myndir eða einhvern texta eða eitthvað, sem þið viljið að ég setji á síðuna. Ef að einhverjir fleiri vilja fá aðgang að síðunni og pósthólfinu þá bara sendið þið mail á þessa adressu eða skrifið í comment og ég redda því.

Föstudagurinn fyrir fiskidaginn var sá dagur sem búið var að ræða um en er ekki endilega sá eini. Ef þið hafið aðra dagsetningu í huga endilega komið með hana.

Finnst ykkur ekki að allir séu velkomnir sem einhverntíman voru í Dalvíkurskóla í þessum líka fína árgangi 1982?

Ef að fleiri vilja að við hittumst þá væri líka gott að einhverjir fleiri bjóði sig fram í einhverskonar nefndarstörf. Pétur er sá eini sem búinn er að bjóða sig fram. Það er ekkert endilega skilyrði að þeir sem verða í nefnd búi á sama stanum. Þar sem við búum nú svo vel að hafa msn, tölvupóst og síma.  

Kv, Íris


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 12:25:57 / gaman

Við egum víst orðin gömul....

.... og verðum að sætta okkur við það að í ár eigum við 10. ára fermingarafmæli. Hvernig væri að við myndum hittast að því tilefni á draumbáu víkinni? Einhver umræða hefur verið um að hittast á föstudeginum fyrir fiskidaginn. Því ákvað ég að útbúa svona síðu og sjá hvort virkilega sé einhver áhugi fyrir hendi. Ef þið viljið láta bæta inn tengli eða taka út tengil er það minnsta mál.

Endilega látið það berast að búið sé að opna síðu fyrir okkur. :lol:


» 13 hafa sagt sína skoðun